• mið. 22. ágú. 2012
  • Leyfiskerfi

Gæðavottun á leyfiskerfi KSÍ staðfest

Gæðastimpill SGS
SGSapproval_UEFA_ENG_horiz_RGB

Fyrr í mánuðinum fór fram árlegt og víðtækt gæðamat á leyfiskerfi KSÍ. Úttektin er framkvæmd af SGS, sem er alþjóðlegt vottunarfyrirtæki, fyrir hönd UEFA. Alls þarf KSÍ að uppfylla 40 forsendur í gæðastaðli leyfiskerfisins, sem UEFA gefur út. Engar athugasemdir voru gerðar og var gæðavottunin því staðfest.

Athugasemdirnar frá vottunarfyrirtækinu SGS geta verið tvenns konar - Major eða minor, þ.e. meiriháttar eða minniháttar.  Meiriháttar athugasemd þýðir að viðkomandi knattspyrnusamband á það á hættu að missa leyfið til að stjórna leyfiskerfinu og gefa út þátttökuleyfi, og þá myndi UEFA taka yfir leyfisstjórn í viðkomandi landi.  Minniháttar athugasemd þarf að laga innan ákveðinna tímamarka.  Ef það er ekki gert verður hún að meiriháttar athugasemd.  KSÍ hefur aldrei fengið meiriháttar athugasemd.

Í úttekt SGS í ágúst 2012 kom engin athugasemd fram, hvorki meiriháttar eða minniháttar.  Fram komu tvær ábendingar/tillögur, án þess þó að um athugasemd væri að ræða. 

Fulltrúi SGS lýsti að öðru leyti yfir mikilli ánægju með uppsetningu leyfiskerfis KSÍ, skipulag þess og vinnuferla.

SGS staðfesti því gæðavottun á leyfiskerfi KSÍ.

Um gæðavottun SGS