• mið. 09. jan. 2013
  • Leyfiskerfi

Styttist í skiladag leyfisgagna í ferlinu fyrir 2013

Sportmyndir_30P5752
Sportmyndir_30P5752

Það styttist í að leyfisgögnum félaga í Pepsi-deild karla og 1. deild karla rigni yfir leyfisstjórn KSÍ.  Skiladagur er 15. janúar og skila leyfisumsækjendur þá gögnum sem snúa að öðrum þáttum en fjárhagslegum. 

Á meðal gagna sem skilað er í janúar eru ráðningarsamningar þjálfara og annarra lykilstarfsmanna, staðfestingar vegna lagalegra þátta og mannvirkja, og upplýsingar um stefnu í knattspyrnulegu uppeldi ungra leikmanna.

Fjárhagsgögnum, m.a. endurskoðuðum ársreikningum og staðfestingum á engum vanskilum vegna félagaskipta og vegna greiðslna til leikmanna og þjálfara, er svo skilað eigi síðar en 20. febrúar.

Fimm félög hafa skilað nú þegar

Nú þegar hafa fimm félög skilað sínum gögnum, eitt félag í 1. deild (Fjölnir) og fjögur Pepsi-deildarfélög (FH, Fylkir, Keflavík og Valur).  Leyfisstjórn fer yfir gögnin, gerir athugasemdir þar sem við á og vinnur að úrbótum með félaginu áður en umsóknin fer fyrir leyfisráð í byrjun mars.