• mið. 13. feb. 2013
  • Leyfiskerfi

Skiladagur fjárhagsgagna er miðvikudagurinn 20. febrúar

Ldv_2011_Atburdir-145
Ldv_2011_Atburdir-145

Miðvikudaginn 20. febrúar næstkomandi er skiladagur fjárhagsgagna í leyfisferlinu fyir keppnistímabilið 2013.  Þá skila leyfisumsækjendur ársreikningum sínum og ýmsum öðrum fjárhagslegum staðfestingum, s.s. staðfestingum á engum vanskilum við önnur félög vegna félagaskipta eða við leikmenn og þjálfara vegna launa- og/eða verktakagreiðslna á árinu 2012.

Félög í Pepsi-deild karla þurfa fulla áritun endurskoðanda á sína ársreikninga, en félögum í 1. deild dugar svokölluð könnunaráritun.

Keflvíkingar hafa þegar skilað sínum fjárhagsgögnum, fyrstir liðanna 24 í þessu leyfisferli, en þess má geta að Keflavík var einnig fyrsta félagið sem skilaði öðrum gögnum en fjárhagslegum.