• þri. 26. feb. 2013
  • Lög og reglugerðir

Ólöglegir leikmenn með BÍ/Bolungarvík

Knattspyrnusamband Íslands
ksi-merki

Í samræmi við greinar 9.1 og 11. 2 í reglugerð KSÍ um Deildarbikarkeppni karla hefur skrifstofa KSÍ staðfest að þeir Réne Sehested og Shane Williams léku ólöglegir með BÍ/Bolungarvík gegn Grindavík í Lengjubikar karla, þann 23. febrúar síðastliðinn. Leikmennirnir eru skráðir í erlend félagslið.

Í samræmi við ofangreindar reglugerðir eru úrslit leiksins skráð 0-3 og BÍ/Bolungarvík er sektað um kr. 30.000.