• mán. 18. mar. 2013
  • Leyfiskerfi

16 þátttökuleyfi veitt á seinni fundi leyfisráðs

Sportmyndir_30P6991
Sportmyndir_30P6991

Seinni fundur leyfisráðs í leyfisferlinu fyrri keppnistímabilið 2013 fór fram föstudaginn 15. mars.  Sextán félögum voru veitt þátttökuleyfi á fundinum, en átta félög höfðu fengið útgefin leyfi á fyrri fundi ráðsins mánudaginn 11. mars.  Öll 24 félögin í efstu tveimur deildum karla hafa því fengið útgefin leyfi fyrir sumarið.

Á fundinum kynnti leyfisstjóri stöðu mála hjá félögunum 16 sem undirgangast leyfiskerfið og voru ekki afgreidd á fyrri fundi leyfisráðs þann 11. mars.  Farið var yfir stöðu hvers félags um sig.  Neðangreindum félögum voru veitt þátttökuleyfi:

  • Pepsi-deild:  Breiðablik, FH, Fram, Fylkir, ÍBV, Keflavík, Víkingur Ó og Þór.
  • 1. deild:  BÍ/Bolungarvík, KA, KF, Selfoss, Tindastóll, Víkingur R, Völsungur og Þróttur R.

Mannvirki

Stjórn KSÍ samþykkti aðlögunarfresti vegna mannvirkjaþátta til alls átta af ofangreindum félögum á fundi sínum fimmtudaginn 14. mars.  Sá frestur sem hverju félagi var veittur miðaði við umfang þeirra framkvæmda sem ráðast þarf i til að keppnisvöllur þess félags uppfylli kröfur mannvirkjareglugerðar.

Félögin hafa því fengið þátttökuleyfi útgefið af leyfisráði, en leyfin eru veitt miðað við að gerðar verði úrbætur á mannvirkjum (áhorfendaaðstöðu og öðru þar sem við á) innan tiltekinna tímamarka.  Þau tímamörk hafa verið kynnt félögunum.  Þessi félög eru neðangreind:

  • Fylkir vegna Fylkisvallar
  • ÍBV vegna Hásteinsvallar
  • Keflavík vegna Nettóvallarins
  • Víkingur Ól. vegna Ólafsvíkurvallar
  • Þór vegna Þórsvallar
  • BÍ/Bolungarvík vegna Torfnesvallar
  • KF vegna Ólafsfjarðarvallar
  • Völsungur vegna Húsavíkurvallar

Þjálfaramenntun

ÍBV, KA, Selfoss og Þór voru minnt á að gæta að því að menntun aðstoðarþjálfara yngri flokka uppfylli settar kröfur.

FH og Þór voru minnt á að gæta að því að þjálfarar sæki nauðsynlega endurmenntun þar sem við á.

KF og Völsungur voru minnt á að gæta að því að menntun aðalþjálfara jafnt sem aðstoðarþjálfara yngri flokka uppfylli settar kröfur.  Þessi félög undirgangast leyfiskerfið í fyrsta sinn og njóta því eins árs aðlögunarfrests.

Aðalþjálfari 4. flokks hjá Tindastóli uppfyllir ekki menntunarkröfur - er með 1. stig en þarf KSÍ-B.  Málinu verður vísað til aga- og úrskurðarnefndar, sem ákveður viðurlög.

Dómgæsla og knattspyrnulögin

Enginn fulltrúi Fram sótti fund KSÍ um dómgæslu og knattspyrnulögin vor 2012 og enginn sambærilegur fundur var haldinn á vegum félagsins.  Málinu verður vísað til aga- og úrskurðarnefndar, sem ákveður viðurlög.

Aðlögunarfrestur nýliða

Völsungur og KF eru nýliðar í leyfiskerfinu og eru því á eins árs aðlögun að þeim kröfum sem þar eru gerðar.  Félögunum er bent á að fyrir keppnistímabilið 2014 þarf að vera tryggt að þau uppfylli allar lykilkröfur og hafa þau þegar lagt fram áætlanir sínar þess efnis, sem sýna hvernig kröfurnar verða uppfylltar og hvenær.