• mið. 01. sep. 2021
  • Landslið
  • A karla

Afhending miða á leiki A karla í september fyrir handhafa A og DE skírteina

Mynd - fotbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Handhafar A og DE skírteina KSÍ geta nú sótt um miða á landsleiki A karla gegn Rúmeníu, Norður Makedóníu og Þýskalandi í undankeppni HM 2022.

Hægt verður að nálgast miða á leikinn gegn Rúmeníu rafrænt á vef tix.is til kl. 12:00 fimmtudaginn 2. september. Fyrir leikina gegn Norður Makedóníu og Þýskalandi verður hægt að nálgast miða á leikina rafrænt á vef tix.is til kl. 12:00 laugardaginn 4. september. Finna má slóðir inn á þá hér að neðan.

Ísland - Rúmenía

Ísland - Norður Makedónía

Ísland - Þýskaland

Leikurinn gegn Rúmeníu fer fram fimmtudaginn 2. september kl. 18:45 og er leikinn á Laugardalsvelli.

Leikurinn gegn Norður Makedóníu fer fram sunnudaginn 5. september kl. 16:00 og er leikinn á Laugardalsvelli.

Leikurinn gegn Þýskalandi fer fram miðvikudaginn 8. september kl. 18:45 og er leikinn á Laugardalsvelli.