• þri. 01. feb. 2022
  • Landslið
  • Skrifstofa

Starf á knattspyrnusviði á skrifstofu KSÍ

Knattspyrnusamband Íslands óskar eftir að ráða starfsmann á knattspyrnusviði á skrifstofu KSÍ.  Meginverkefni eru tengd A landsliði kvenna og öðrum landsliðum, heilbrigðismálum auk afleysinga og annarra tilfallandi verkefna.

Nauðsynlegt er að umsækjandi hafi gott vald á íslensku, ensku og hvers kyns tölvuvinnslu. Þá er mikilvægt að umsækjandi hafi góða þekkingu á og brennandi áhuga fyrir knattspyrnu og hafi starfað með einhverjum hætti við kvennaknattspyrnu.

Umsóknarfrestur er til 9. febrúar og viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst. Nánari upplýsingar veitir Klara Bjartmarz framkvæmdastjóri KSÍ (klara@ksi.is). Umsóknum (ásamt sakavottorði) skal skilað með tölvupósti eigi síðar en 9. febrúar (klara@ksi.is).

Stefnumótun KSÍ

Jafnréttisstefna og jafnréttisáætlun KSÍ