• fim. 06. okt. 2022
  • Landslið
  • A karla

A karla - Ísland í 62. sæti á nýjum styrkleikalista FIFA

A landslið karla er í 62. sæti á nýjum styrkleikalista FIFA sem gefinn var út í dag, fimmtudag. Liðið fer upp um eitt sæti frá síðasta lista sem kom út í ágúst.

Í september spilaði Ísland síðasta leik sinn í Þjóðadeildinni, þar sem öllum leikjum liðsins lauk með jafntefli. Framundan hjá liðinu er Baltic Cup sem fram fer um miðjan nóvember.

Næsti styrkleikalisti FIFA verður gefinn út að loknu heimsmeistaramótinu, þann 22. desember.