• lau. 05. nóv. 2022
  • Landslið
  • A karla

Mæta SA í SAF á sunnudag

A landslið karla mætir Sádi-Arabíu í vináttuleik á sunnudag.  Leikurinn fer fram í Abu Dhabi í Sameinuðu arabísku furstadæmunum, hefst kl. 12:00 að íslenskum tíma og er í beinni útsendingu á Viaplay.  Íslenski hópurinn, sem er að stórum hluta skipaður leikmönnum úr Bestu deildinni, hefur æft síðustu daga í Abu Dhabi við góðar aðstæður.

Ísland og Sádi-Arabía hafa fimm sinnum áður mæst í A landsliðum karla, fyrst árið 1984 og síðast árið 2002.  Íslenska liðið hefur unnið einu sinni, tvisvar hafa liðin skilið jöfn og tvisvar hafa Sádar unnið sigur.

Skoða fyrri viðureignir

A landslið karla