• mán. 27. mar. 2023
  • Landslið
  • U19 karla

U19 karla - Ísland mætir Ungverjalandi á þriðjudag

Mynd - Hulda Margrét Óladóttir

U19 karla mætir Ungverjalandi á þriðjudag í síðasta leik sínum í milliriðlum undankeppni EM 2023.

Leikurinn fer fram á St. George's Park og hefst hann kl. 18:30. Hægt verður að fylgjast með beinni textalýsingu á vef UEFA:

Vefur UEFA

Ísland er í efsta sæti riðilsins með fjögur stig eftir tvo leiki og sigur gegn Ungverjum myndi tryggja liðinu sæti í lokakeppni EM 2023.