• þri. 13. jún. 2023
  • Landslið
  • A karla
  • EM 2024

Mótsmiðasala opnar aftur á miðvikudag

KSÍ hefur ákveðið að opna fyrir sölu á fleiri mótsmiðum á leiki A landsliðs karla í undankeppni EM 2024.

Fyrir hverja keppni er ákveðinn fjöldi miða tekinn frá fyrir ýmsa samstarfsaðila (innlenda og erlenda) en í mörgum tilfellum eru þeir ekki nýttir til fulls. Nú þegar aðeins eru fjórir dagar í fyrsta heimaleik er ljóst að svigrúm hefur skapast til að selja hluta af þessum miðum og hefur KSÍ því ákveðið að opna fyrir sölu á þeim sætum sem eru laus á alla fimm leiki ársins. Alls er um að ræða rúmlega 200 sæti og verður miðasalan opnuð miðvikudaginn 14. júní kl. 12:00 á Tix.is.

Miðasala þessara mótsmiða verður opin þar til allir þessir miðar eru seldir en þó ekki lengur en til kl. 12:00 fimmtudaginn 15. júní.

Vefur Tix.is

Undankeppni EM 2024