• mán. 04. sep. 2023
  • Landslið
  • A karla
  • EM 2024

Undirbúningur fyrir septemberleiki hafinn

A landslið karla kemur saman til æfinga á mánudag til undirbúnings fyrir komandi leiki í undankeppni EM 2024.  Ísland mætir Lúxemborg ytra 8. september og Bosníu og Hersegóvínu á Laugardalsvelli 11. september.

Íslenska liðið æfir í Mainz í Þýskalandi á framan af vikunni og heldur síðan yfir til Lúxemborg á miðvikudag.

Báðir leikirnir eru í beinni útsendingu og opinni dagskrá á Stöð 2 sport.  Miðasala á heimaleikinn við Bosníu og Hersegóvínu er í fullum gangi á tix.is.

A landslið karla