• mán. 14. jan. 2002
  • Fræðsla

Hefur þú brennandi áhuga á knattspyrnu?

KSÍ óskar að ráða starfsmann á skrifstofu sambandsins. Meginverkefni er umsjón með fræðslu- og útbreiðslustarfi KSÍ. Nauðsynlegt er að umsækjandi hafi gott vald á íslensku, ensku og hvers kyns tölvuvinnslu. Þá er æskilegt að umsækjandi hafi góða þekkingu á knattspyrnu - þjálfun og vald á dönsku, norsku eða sænsku.

Upplýsingar veitir framkvæmdastjóri í síma 510 2900. Umsóknum skal skilað eigi síðar en 21. janúar til KSÍ, Laugardal, 104 Reykjavík. Umsóknum má einnig skila með tölvupósti - til ksi@ksi.is.