• mið. 27. mar. 2002
  • Fræðsla

Þjálfaramenntun KSÍ - III (C-)

Fræðslunefnd KSÍ heldur KSÍ III (C-stigs) þjálfaranámskeið í Reykjavík 19. ? 21. apríl næstkomandi samkvæmt kennsluskrá um þjálfaramenntun og þurfa þátttakendur að hafa lokið KSÍ II (B-stigi). Þátttaka tilkynnist til skrifstofu KSÍ fyrir 17. apríl í síma 510-2900 eða með tölvupósti, en námskeiðsgjald er kr. 12.000. Nánari upplýsingar fást á skrifstofu KSÍ.