• þri. 01. okt. 2002
  • Fræðsla

Þjálfaranámskeið KSÍ I (A-stig)

Fræðslunefnd KSÍ heldur þjálfaranámskeið I (A-stig) 18. - 20. október næstkomandi samkvæmt námsskrá um þjálfaramenntun. Námskeiðið er bæði bóklegt og verklegt og er hámarksfjöldi þátttakenda 30 manns. Skráning á námskeiðið fer fram á skrifstofu KSÍ í síma 510-2900 (Margrét og Erna) og er þátttökugjald kr. 12.000, en ganga þarf frá greiðslu fyrir 11.október. Nánari upplýsingar um námskeiðið veitir Sigurður Ragnar Eyjólfsson, fræðslustjóri KSÍ, í síma 510-2909. Vert er að benda á að ýmsan fróðleik um þjálfaranámskeið KSÍ má finna í valmyndinni hér til vinstri undir Allt um KSÍ / fræðslumál.

Dagskrá