• mán. 13. okt. 2003
  • Fræðsla

Hefur þú rétt á að fara í UEFA-B prófið?

Í janúar verður haldið UEFA-B próf fyrir þjálfara. Hér að neðan má sjá þær reglur sem gilda um þátttökurétt á prófinu:

- Allir sem hafa lokið KSÍ- IV hafa þátttökurétt á UEFA- B prófinu.
- Þeir sem luku E-stigi eða seinni hluta D-stigs á síðustu 3 árum hafa líka þátttökurétt á prófinu.
- Þeir þjálfarar sem luku E-stigi eða seinna hluta D-stigs fyrir meira en 3 árum síðan þurfa að sækja um þátttökurétt til fræðslunefndar KSÍ og þar skal koma fram endurmenntun og þjálfun þeirra síðastliðin 3 ár (þetta má gera á tölvupósti: (siggi@ksi.is).
- Þeir sem hafa lokið fyrri hluta D-stigs þurfa að sitja KSÍ- IV (7. - 9. nóvember) til að mega taka prófið.