• mið. 25. ágú. 2004
  • Fræðsla

UEFA verðlaunar félög fyrir grasrótarstarf

Í tilefni af 50 ára afmæli UEFA ákváðu samtökin að verðlauna félag/félög í hverju aðildarlandi fyrir best skipulagða knattspyrnuskóla eða viðburð (The most valuable Grassroots football event) fyrir árið 2004. KSÍ hefur undanfarna viku leitað að slíku félagi/félögum. Verðlaunin eru 50 Adidas boltar og er óskað eftir ábendingum ásamt rökstuðningi frá aðildarfélögum eða öðrum aðilum. Frestur til að skila inn ábendingum rennur út í dag, miðvikudaginn 25. ágúst. Ábendingar sendist á netfangið halldor@ksi.is.