• þri. 15. jan. 2008
  • Fræðsla

Umfjöllun um Akranes á vefsíðu UEFA

ÍA
Knattsp.IA.1

Á morgun mun birtast á heimasíðu UEFA umfjöllun um knattspyrnubæinn Akranes og þann fjölda atvinnumanna er koma þaðan.  Aðilar frá heimasíðu UEFA voru hér í sumar og tóku upp efni sem birt verður á morgun.

Þegar að úrslitakeppni U19 kvenna var haldin hér á landi í sumar, heimsóttu starfsmenn uefa.com Akranes.  Fóru þeir þangað til að skoða aðstæður enda hefur Akranes vakið athygli í knattspyrnuheiminum fyrir fjölda atvinnumanna er þaðan hafa komið.  Tóku þeir viðtöl við nokkra af forkólfum og lykilmönnum knattspyrnunnar á Akranesi og reyndu að komast að leyndarmáli Skagamanna.

Afrakstur þessarar heimsóknar verður birtur á morgun á heimasíðu UEFA, undir lið sem nefnist "Training ground".

Frétt á uefa.com