• mán. 22. des. 2008
  • Fræðsla

Yfirþjálfari barna- og unglingastarfs Barcelona í Fífunni

Merki Barcelona
Barcelona_logo

Albert Capellas yfirþjálfari barna- og unglingastarfs Barcelona heldur fyrirlestra og stjórnar æfingum í Fífunni 28. desember næstkomandi.  Hann er hér í boði Knattspyrnuþjálfarafélags Íslands.

Dagskrá:

11:00-12:30 Fyrirlestur um skipulag og hugmyndafræði bak við barna- og unglingastarf FC Barcelona

12.30-14:30 Capellas stýrir æfingu í Fífunni

14.30-15:30 Hlé

15:30-17:00 Fyrirlestur um ársáætlanir og vikuáætlanir sem og skipulag og uppsetningu æfinga hjá FC Barcelona

17:00-19:00 Capellas stýrir æfingu í Fífunni

KÞÍ meðlimir fá frítt á þennan viðburð en aðrir borga 2000 krónur.  Athugið takmarkaður aðgangur. Skráning á ulfar_h@simnet.is arnarbill@breidablik.is sigurdurth@bhs.is.

Látið ekki þennan einstaka viðburð framhjá ykkur fara.