• mán. 05. jan. 2009
  • Fræðsla

Námskeið á vegum FIFA fyrir félög í Landsbankadeild karla

Merki FIFA
FIFA

Dagana 14. og 15. janúar næstkomandi munu fulltrúar FIFA halda námskeið um TMS kerfi FIFA fyrir félögin í Landsbankadeild karla 2009 og fer námskeiðið fram í  höfuðstöðvum.  

TMS er nýtt félagaskiptakerfi FIFA sem heldur utan um öll alþjóðleg félagaskipti á rafrænan hátt og í framtíðinni munu félagaskipti á milli landa eingöngu vera afgreidd í gegnum þetta kerfi.  Félögum í Landabankadeild karla ber að nota kerfið strax á þessu ári og á næstu árum verður öðrum deildum bætt við.  Kerfið byggir á því að viðkomandi félög skrái sjálf sögu þeirra leikmanna sem eru að hafa félagaskipti. 

Kerfið á sérstaklega að tryggja hag minni félaga þar sem öll félagaskiptasaga leikmanna verður skráð og þannig á kerfið að tryggja það að félög fái þær bætur sem þeim ber hratt og greiðlega.