• mið. 16. apr. 2014
  • Fræðsla

KSÍ B próf - 30. apríl

Þjálfari að störfum
coaching1

Miðvikudaginn 30. apríl stendur fræðslusvið KSÍ fyrir KSÍ B prófi (UEFA B prófi). Prófið er opið öllum þjálfurum sem hafa klárað KSÍ I, II, III, IV, KSÍ B þjálfaraskólann og skilað öllum verkefnum á fullnægjandi hátt (engar undantekningar eru gerðar).

Prófað er úr öllu námsefni KSÍ I, II, III og IV og úr nýjustu útgáfu af knattspyrnulögunum (http://www.ksi.is/domaramal/knattspyrnulogin/). Engin hjálpargögn eru leyfð í prófinu. Ef þjálfurum sem hyggjast taka prófið vantar einhver gögn, vinsamlegast hafið samband við undirritaðan.

 Þær bækur sem afhentar eru á KSÍ I-IV og eru þ.a.l. til prófs eru eftirfarandi:

  • Kennslu og æfingaskrá fyrir barna- og unglingaþjálfun í knattspyrnu (KSÍ I)

  • Þjálffræði (KSÍ II)

  • Markmaður - færni og þjálfun (KSÍ III)

  • Loftháð og loftfirrt þjálfun knattspyrnumanna (KSÍ III)

Prófið fer fram í fræðslusetri KSÍ í Laugardal, hefst stundvíslega kl. 16:30 og próftími er tvær klukkustundir. Þátttakendur sem búa á landsbyggðinni og vilja taka prófið í sinni heimabyggð, þurfa að hafa samband tímanlega við fræðslusvið KSÍ (dagur@ksi.is), svo hægt sé að gera viðeigandi ráðstafanir. Prófið byrjar á sama tíma um allt land.

Próftöku- og skírteinisgjald er 3.000 krónur.

Opið er fyrir skráningu í prófið en hægt er að skrá sig með því að senda tölvupóst á dagur@ksi.is eða hringja í síma 510-2977. Þær upplýsingar sem þurfa að koma fram við skráningu eru eftirfarandi: nafn, kennitala, símanúmer, tölvupóstfang, fæðingarstaður og félag.

KSÍ B undirbúningur 2014

Skipulag þjálfaranámskeiða KSÍ