• þri. 04. nóv. 2014
  • Fræðsla

KSÍ III þjálfaranámskeið 21.- 23. nóvember 2014

Þjálfari að störfum
coaching8

Knattspyrnusamband Íslands mun halda 3. stigs þjálfaranámskeið helgina 21.-23. nóvember. Námskeiðið er opið öllum sem lokið hafa við fyrstu tvö stigin, þ.e. KSÍ I og KSÍ II þjálfaranámskeið.

Námskeiðið fjallar um þjálfun barna og unglinga að 18 ára aldri. Námskeiðið er bæði bóklegt og verklegt og efnistök námskeiðsins eru:

  • Áætlunargerð og knattspyrnuleg markmið félags/flokks

  • Þjálffræði - þol og styrktarþjálfun fyrir knattspyrnu

  • Skyndihjálp og meiðsli í knattspyrnu

  • Endurlífgun

  • Markmannsþjálfun - grunnatriði í markvörslu

  • Leikfræði liðsins - liðsuppstillingar og föst leikatriði

  • Fótbolti fyrir fatlaða - Special Olympics

  • Íþróttasálfræði - endurgjöf

  • Íþróttasálfræði - áhugahvöt

  • Leikgreining

  • Verkefni, 20 tímar í þjálfun hjá félagi

Dagskrá námskeiðsins er í vinnslu og verður auglýst eins fljótt og hægt er. Námskeiðsgjald er 25.500 kr.

Opið er fyrir skráningu á námskeiðið en hægt er að skrá sig með því að senda tölvupóst á dagur@ksi.is og eins með því að hringja í síma 510-2977. Eftirfarandi upplýsingar þurfa að fylgja skráningunni: Nafn, kennitala, tölvupóstfang, símanúmer og félag.