• þri. 04. nóv. 2014
  • Fræðsla

KSÍ V þjálfaranámskeið haldið 7. - 9. nóvember

Þjálfari að störfum
coaching5

Helgina 7. - 9. nóvember mun Knattspyrnusamband Íslands standa fyrir 5. stigs þjálfaranámskeiði í höfuðstöðvum KSÍ. Þátttökurétt á námskeiðið hafa allir þeir þjálfarar sem eru með KSÍ B/UEFA B þjálfaragráðu og fengu a.m.k. 70 af 100 í skriflega KSÍ B prófinu. Námskeiðið er upphafið af KSÍ A (UEFA A) þjálfaragráðu. Seta á þessu námskeiði framlengir einnig gildistíma KSÍ B skírteinis (UEFA B skírteinis) um þrjú ár.

Þátttökugjald á námskeiðið er 23.000 krónur. Dagskrá námskeiðsins er hér í viðhengi.

Skráning á KSÍ V þjálfaranámskeiðið er hafin og geta áhugasamir skráð sig með því að senda tölvupóst á dagur@ksi.is eða með því að hringja í 510-2977. Eftirfarandi upplýsingar þurfa að koma fram við skráningu: nafn, kennitala, símanúmer, tölvupóstfang og félag.

Dagskrá KSÍ V 7. - 9. nóvember