• fös. 08. sep. 2017
  • Fræðsla

Hæfileikamótun KSÍ og N1 - Vesturland

KSI-MERKI-PNG

Hæfileikamótun KSÍ og N1 fer fram á Akranesi sunnudaginn 17 september .  

Æfingarnar eru fyrir drengi og stúlkur sem eru fædd 2003 og 2004. 

Það er Dean Martin sem fer fyrir verkefninu.  

Dagskrá heimsóknar á Vesturland:  

Sunnudagurinn 17 september 

• 12:00-13:15 æfing með drengjum. 

• 13:15-14:30 æfing með stúlkum. 

Helstu markmið hæfileikamótunar KSÍ eru að:  

• Fjölga þeim leikmönnum sem fylgst er með.  

• Fylgjast með yngri leikmönnum en áður og undirbúa þá fyrir hefðbundnar landsliðsæfingar.  

• Koma til móts við minni staði á landsbyggðinni og mæta þeirra þörfum.  

• Koma til móts við leikmenn stærri félaga á höfuðborgarsvæðinu sem að öllu jöfnu væru ekki valdir á landsliðsæfingar.  

• Bæta samskipti við aðildarfélögin og kynna fyrir þeim stefnu KSÍ í landsliðsmálum.  

• Undirbúa leikmenn enn betur til þess að mæta á landsliðsæfingar seinna með fræðslu

Hópur - stúlkur

Hópur - drengir