• þri. 28. jan. 2020
  • Mótamál

Undanúrslit Reykjavíkurmóts meistaraflokks karla á fimmtudaginn

Mynd - fotbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Undanúrslit Reykjavíkurmóts meistaraflokks karla fara fram fimmtudaginn 30. janúar.

KR og Víkingur R. mætast kl. 19:00 og strax á eftir þeim leik mætast Valur og Fjölnir kl. 21:00.

Báðir leikirnir fara fram í Egilshöll.

Athygli er vakin á því að ef jafnt verður eftir venjulegan leiktíma í leikjunum þá verður strax gripið til vítaspyrnukeppni til að knýja fram úrslit.

Úrslitaleikurinn fer svo fram mánudaginn 3. febrúar kl. 20:00 og fer einnig fram í Egilshöll.

Leikjaniðurröðun