• fim. 11. mar. 2021
  • Mótamál

Viltu starfa á skrifstofu KSÍ?

Knattspyrnusamband Íslands óskar eftir að ráða starfsmann á innanlandssvið á skrifstofu KSÍ.  Meginverkefni eru tengd mótamálum og niðurröðun móta, félagaskiptum og mannvirkjamálum, auk afleysinga og annarra tilfallandi verkefna.  Nauðsynlegt er að umsækjandi hafi gott vald á íslensku, ensku og hvers kyns tölvuvinnslu.  Þá er æskilegt að umsækjandi hafi góða þekkingu á og brennandi áhuga fyrir knattspyrnu.

Umsóknarfrestur er til 19. mars og viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.  Nánari upplýsingar veitir Klara Bjartmarz framkvæmdastjóri KSÍ (klara@ksi.is). Umsóknum (ásamt sakavottorði) skal skilað með tölvupósti eigi síðar en 19. mars (klara@ksi.is).

Stefnumótun KSÍ

Jafnréttisstefna og jafnréttisáætlun KSÍ

Mynd með grein:  Hafliði Breiðfjörð, Fótbolti.net.