• mið. 02. feb. 2022
  • Mótamál

Drög að niðurröðun Íslandsmótsins í keppni A-liða í 3. flokki karla og kvenna

KSÍ hefur birt drög að niðurröðun leikja Íslandsmótsins í keppni A-liða í 3. flokki karla og kvenna, en keppni hefst í byrjun mars.

Félög eru vinsamlegast beðin um að fara vandlega yfir þessi drög og koma með athugasemdir í síðasta lagi sunnudaginn 13. febrúar á netfangið birkir@ksi.is.

Skoða þarf sérstaklega tímasetningar leikja m.t.t. vallarmála og ferðlaga milli landshluta. Einnig er ljóst að sumir leikvellir verða ekki tilbúnir þegar fyrsta lota leikja fer fram. Hlutaðeigandi heimalið þurfa að leysa þau mál sérstaklega.

Mótin á vef KSÍ

Neðst í fréttinni er kynning sem flutt var um fyrirkomulagið á fundi formanna- og framkvæmdastjóra aðildarfélaga KSÍ þann 27. nóvember sl.

Drög að niðurröðun leikja í B og C-liðum 3. flokks (og annarra yngri flokka móta) verða birt 1. mars.

Frekari upplýsingar veitir Birkir Sveinsson, mótastjóri, birkir@ksi.is.

Kynning