• fös. 11. feb. 2022
  • Mótamál

Þróttur R. Reykjavíkurmótsmeistari í meistaraflokki kvenna

Þróttur R. er Reykjavíkurmótsmeistari í meistaraflokki kvenna árið 2021. 

Þetta varð ljóst eftir 6-1 sigur liðsins gegn Fjölni, en leikið var í Egilshöllinni. Enn eru tveir leikir eftir í mótinu, en ljóst er að Valur getur ekki náð Þrótti að stigum. Þróttur vann fimm af sex leikjum sínum í riðlinum og gerði eitt jafntefli. Þetta er jafnframt í fyrsta sinn sem liðið verður Reykjavíkurmótsmeistari í meistaraflokki kvenna.

Til hamingju Þróttur R.!