• þri. 19. apr. 2022
  • Mótamál

Valur sigurvegari Meistarakeppni KSÍ kvenna 2022

Meistarakeppni KSÍ í meistaraflokki kvenna fór fram á annan í páskum þegar Valur og Breiðablik mættust.

Leikurinn fór fram á Origo vellinum og var staðan jöfn, 0-0, þegar venjulegum leiktíma var lokið. Að síðari hálfleik loknum var farið beint í vítaspyrnukeppni og voru það Valur sem stóðu uppi sem sigurvegarar. Valur skoraði úr fjórum spyrnum, en Breiðablik úr þremur.

Til hamingju Valur!

Besta deild kvenna hefst svo þriðjudaginn 26. apríl með tveimur leikjum. ÍBV og Stjarnan mætast á Hásteinsvelli og Valur og Þróttur R. mætast á Origo vellinum.