• þri. 30. ágú. 2022
  • Fræðsla

UEFA nám fyrir framkvæmdastjóra félaga og yfirmenn knattspyrnumála

UEFA DFLM (UEFA Diploma in Football Leadership and Management) er nám á vegum Knattspyrnusambands Evrópu (UEFA) fyrir stjórnendur í knattspyrnuhreyfingunni og hentar m.a. vel fyrir framkvæmdastjóra knattspyrnufélaga og yfirmenn knattspyrnumála, eða aðra stjórnendur sem starfa að málefnum félaga, leikmanna, þjálfara eða annarra þátttakenda leiksins.

Um er að ræða 12 mánaða nám á háskólastigi í samstarfi við svissnesku námsstofnunina IDHEAP (The Swiss Graduate School of Public Administration, háskólinn í Lausanne), þar sem áhersla er lögð á að efla þekkingu, stjórnun og leiðtogafærni.

Hægt er að skoða nánari upplýsingar, og sækja um námið, á vef UEFA.

Smellið hér til að skoða nánar

Mynd:  Vefur UEFA.