• fös. 02. sep. 2022
  • Fræðsla

Fræðsluviðburður: Einelti, samskipti og forvarnir

Fimmtudaginn 15. september mun KSÍ bjóða upp á fyrirlestur sem ber heitið Einelti, samskipti og forvarnir. Fyrirlesari er Vanda Sigurgeirsdóttir, formaður KSÍ, en Vanda hefur víðtæka þekkingu og reynslu af viðfangsefninu.

Fyrirlesturinn verður kl. 19:30-22:00 í höfuðstöðvum KSÍ, á 3ju hæð. Frítt er á fyrirlesturinn.

Vanda mun kenna fyrirlesturinn á Egilsstöðum 30. október, Akureyri 1. desember og á Ísafirði 23. febrúar. Þessir viðburðir verða nánar auglýstir síðar og þá með skráningarhlekk.

Viðfangsefni:

  • Einelti og samskiptavandi
  • Jákvæðir og neikvæðir leiðtogar
  • Liðsandi
  • Foreldrasamskipti

Að námskeiðinu loknu eiga þátttakendur að vera komnir með góða innsýn í:

  1. Hvernig á að koma auga á, fyrirbyggja og taka á einelti og samskiptavanda í knattspyrnuliðum.
  2. Hvernig hægt er að efla iðkendur sem jákvæða leiðtoga
  3. Hvernig efla má liðsanda
  4. Hvernig stuðla má að jákvæðum foreldrasamskiptum

Þjálfarar með KSÍ/UEFA þjálfararéttindi fá 4 endurmenntunarstig fyrir að sitja fyrirlesturinn. KSÍ hvetur einnig fólk í stjórnum knattspyrnudeilda og barna- og unglingaráða til að skrá sig á fyrirlesturinn.

Skráningarhlekkur á fyrirlesturinn í Reykjavík, 15.september