• mán. 05. sep. 2022
  • Fræðsla

KSÍ A 1 þjálfaranámskeið 2022

Mynd - Hulda Margrét Óladóttir

Knattspyrnusamband Íslands mun halda KSÍ A 1 þjálfaranámskeið helgina 24.-25. september. Rétt til setu á námskeiðinu hafa allir þjálfarar sem lokið hafa KSÍ B / UEFA B þjálfaragráðu.

Drög að dagskrá námskeiðsins er að finna neðst í fréttinni. Námskeiðsgjald er 26.500 kr.

Viku áður en námskeiðið hefst, þá fá þátttakendur send gögn í gegnum kennsluforritið Canvas. Þátttakendur hafa því viku til undirbúnings, áður en hópurinn hittist svo í höfuðstöðvum KSÍ.

Skráning:

KSÍ A 1, helgina 24.-25. september (skráningu lýkur 16. september): https://forms.gle/rwExFTQaJij9pqz19