• mán. 05. sep. 2022
  • Fræðsla

KSÍ B 1 þjálfaranámskeið 2022

Knattspyrnusamband Íslands mun halda tvö KSÍ B 1 þjálfaranámskeið á næstu vikum. Það fyrra verður helgina 24.-25. september og það síðara verður haldið 1.-2. október.

Rétt til setu á námskeiðinu hafa allir þjálfarar sem lokið hafa KSÍ C þjálfaragráðu (KSÍ I og KSÍ II í gamla kerfinu).

Drög að dagskrá námskeiðsins helgina 24.-25. september má finna neðst í fréttinni. Námskeiðsgjald er 29.000 kr.

Viku áður en námskeiðið hefst, þá fá þátttakendur send gögn í gegnum kennsluforritið Canvas. Þátttakendur hafa því viku til undirbúnings, áður en hópurinn hittist svo í höfuðstöðvum KSÍ.

Skráning:

KSÍ B 1, helgina 24.-25. september (skráningu lýkur 16. september): https://forms.gle/9Hg9ZDvr7Kvgq2hx9
KSÍ B 1, helgina 1.-2. október (skráningu lýkur 23. september): https://forms.gle/TDZEK5QKdsNM1yfS8

Drög að dagskrá