• fim. 29. sep. 2022
  • Fræðsla

KSÍ B 2 þjálfaranámskeið 2022

Knattspyrnusamband Íslands mun halda KSÍ B 2 þjálfaranámskeið helgina 15.-16. október. Rétt til setu á námskeiðinu hafa allir þjálfarar sem lokið hafa KSÍ C þjálfaragráðu (KSÍ I og KSÍ II í gamla kerfinu) og KSÍ B 1 þjálfaranámskeið (KSÍ III í gamla kerfinu).

Dagskrá námskeiðsins er hér að neðan. Námskeiðsgjald er 29.000 kr.

Dagskrá

Mánudaginn 11. október fá þátttakendur send gögn í gegnum kennsluforritið Canvas. Þátttakendur hafa því vikuna fram að námskeiði til undirbúnings, áður en hópurinn hittist svo í höfuðstöðvum KSÍ.

Skráning:

KSÍ B 2, helgina 15.-16. október (skráningu lýkur 11. október): https://forms.gle/NHHocTqCSAG7sm3J9