• fös. 03. feb. 2023
  • Mótamál

Drög að leikjadagskrá í deildakeppnum meistaraflokka

Drög að leikjadagskrá í deildakeppnum meistaraflokks karla og kvenna hefur verið birt á vef KSÍ.

Leikir í forkeppni Mjólkurbikarsins verða birtir í næstu viku. Leikir í bikarkeppni neðri deilda verða birtir þegar nær líður sumri.

Félög eru vinsamlegast beðin um að skoða vandlega sína leiki og koma athugasemdum á framfæri í síðasta lagi föstudaginn 10. febrúar. á netfangið birkir@ksi.is.

Athugið sérstaklega:

-Hvort um sé að ræða árekstra á ykkar heimavelli og við viðburði á svæðinu.
-Hvort um sé að ræða árekstra við aðra leiki innan félagsins.
-Tímasetningar útileikja m.t.t. ferðatilhögunar.


Samsett leit

Á vef KSÍ undir: - Mót/Leikir félaga- er hægt að kalla fram fjóra mismunandi leitarmöguleika (smella í +hnappinn).

Gott er að nýta þessa leitarmöguleika t.d. þegar verið er að lesa yfir heimaleiki félaga sem leiknir eru á mismunandi leikvöllum.

https://www.ksi.is/mot/felog/leikir-felaga/