• fös. 03. feb. 2023
  • Mótamál

Fram Reykjavíkurmeistari karla 2023

Mynd: Helgi Halldórsson

Úrslitaleikurinn í Reykjavíkurmóti karla fór fram í Víkinni í gær, fimmtudag. Fram tryggði sér titilinn með 4-1 sigri á Víking R. Er þetta 28. Reykjavíkurmeistaratitill Framara og sá fyrsti síðan 2014.

Víkingur komst yfir á 8. mínútu leiksins með marki frá Danijel Dejan Djuric og var staðan 1-0 í hálfleik. Í síðari hálfleik sýndu Framarar sýnar bestu hliðar og komust þeir yfir á sjö mínútna kafla með tveimur mörkum frá Magnúsi Þórðarsyni. Tryggvi Snær Geirsson bætti við þriðja marki Fram á 90. mínútu og á 93. mínútu innsiglaði Aron Snær Ingason sigurinn með fjórða marki Fram.

Til hamingju Fram!