• þri. 21. feb. 2023
  • Mótamál

Staðfest niðurröðun í 2.fl.ka. og 3.fl.ka./kv. (lota 1)

KSÍ hefur staðfest niðurröðun leikja Íslandsmótsins í keppni A-liða í 2. flokki karla, 3. flokki karla og 3. flokki kvenna (lota 1).  Verulegar breytingar hafa orðið á niðurröðun leikja, m.a. vegna breyttra skráninga.  Félög eru vinsamlegast beðin um að taka öll eldri drög úr umferð til að forðast óþarfa misskilning.

Vallarmál

Nokkur félög eiga eftir að tilkynna um leikvelli í sínum heimaleikjum (félög ekki með gervigrasvöll).

Enn eru nokkrir árekstrar á leikvöllum sem hlutaðeigandi félög þurfa að skoða hvernig best er að leysa.

Breytingar leikja

Ef nauðsynlegt reynist að breyta leikjum, þá eru leikjabreytingar gerðar á innri vef KSÍ af yfirnotendum hlutaðeigandi félaga.

Minnt er á breytingagjald leikja skv. reglugerð ef breytingar eru gerðar innan 7 daga frá leikdegi.

Nöfn keppnisliða

Ef nöfn keppnisliða eru ekki rétt á vef KSÍ, eru félögin vinsamlegast beðin um að koma réttum upplýsingum til KSÍ.

Mótin á vef KSÍ

Öll mót - Knattspyrnusamband Íslands (ksi.is)

Drög að niðurröðun leikja í öðrum mótum yngri flokka verða birt 1. mars.