• mán. 24. júl. 2023
  • Mótamál

Breiðablik mætir FC Kaupmannahöfn á þriðjudag

Mynd: Hulda Margrét

Breiðablik mætir FC Kaupmannahöfn á þriðjudag í 2. umferð í forkeppni Meistaradeildar Evrópu. Leikurinn fer fram á Kópavogsvelli og verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.

Síðari leikur liðanna fer fram á Parken í Kaupmannahöfn miðvikudaginn 2. ágúst.

Ljóst er að sigurliðið úr einvíginu mætir Spörtu frá Prag í næstu umferð keppninnar. Liðið sem tapar einvíginu færist yfir í 3. umferð í forkeppni Sambandsdeildar Evrópu og mun það lið mæta annað hvort HSK Zrinjski frá Bosníu eða Slovan Bratislava frá Slóvakíu.