• fös. 28. júl. 2023
  • Mótamál

KA vann sigur í Sambandsdeildinni

KA tók á móti írska liðinu Dundalk á Framvellinum í gær í 2. umferð Sambandsdeildar UEFA. KA tryggði sér sæti í 2. umferð keppninnar með öruggum 4-0 sigri á Connah's Quay Nomads í fyrstu umferð.

KA menn komust yfir á 28. mínútu með marki frá Bjarna Aðalsteinssyni, gestirnir voru ekki lengi að svara og jöfnuðu á 32. mínútu. KA menn voru þó hvergi nærri hættir og bættu við marki á 37. mínútu. KA innsigluðu svo sigurinn með þriðja markinu rétt fyrir hálfleik og voru því lokatölur KA 3 Dundalk 1.

Næsti leikur liðana fer fram ytra þann 3. ágúst, og leiða KA menn með tveimur mörkum eftir leik gærdagsins.