• þri. 01. ágú. 2023
  • Mótamál

Breiðablik mætir FC Kaupmannahöfn á miðvikudag

Mynd: Hulda Margrét

Breiðablik spilar síðari leik í 2. umferð í forkeppni Meistaradeildar Evrópu við FC Kaupmannahöfn miðvikudaginn 2. ágúst klukkan 18:00. Leikurinn fer fram á Parken í Kaupmannahöfn og verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.

Fyrri viðureign liðanna endaði með 0-2 sigri FC Kaupmannahafnar.

Ljóst er að sigurliðið úr einvíginu mætir Spörtu frá Prag í næstu umferð keppninnar. Liðið sem tapar einvíginu færist yfir í 3. umferð í forkeppni Sambandsdeildar Evrópu og mun það lið mæta annað hvort HSK Zrinjski frá Bosníu eða Slovan Bratislava frá Slóvakíu.