• þri. 29. ágú. 2023
  • Mótamál

Þróttur oldboys/oldgirls fékk heimsókn frá Bandaríkjunum

Blandað lið Þróttar í aldursflokknum 30+ fékk á dögunum heimsókn frá liðinu VBR Star frá Bandaríkjunum. Spiluðu liðin vináttuleik þar sem þátttakendur voru á aldrinum 30 - 73 ára, konur og karlar.

VBR Star skoraði fyrsta mark leiksins en eftir það var Þróttur með öll völd á vellinum og vann stórsigur.

Elsti leikmaður leiksins var Magnús Dan sem má sjá á meðfylgjandi mynd en með honum á myndinni eru þær Sunna Rut og Hertha Rós.

Íslandsmótin í eldri flokkum karla eru farin af stað og sjá má upplýsingar um mótin hér.