• fös. 29. sep. 2023
  • Mótamál

Víðir lyfti fótbolti.net bikarnum

Víðir varð fyrsta liðið til að lyfta fótbolti.net bikarnum þegar það vann 2-1 sigur gegn KFG.

Úrslitaleikurinn fór fram á Laugardalsvelli en það var KFG sem tók forystuna á 21. mínútu þegar Ólafur Bjarni Hákonarson skoraði með góðu skoti úr teignum. Víðir voru ekki lengi að jafna, tuttugu mínútum síðar skoraði Tómas Leó Ásgeirsson af vítapunktinum.

Það var svo í lok leiksins sem sigurmarkið leit dagsins ljós, en það var Elís Már Gunnarsson sem skoraði það eftir frábært spil Víðismanna.

Víðir því fyrsta liðið sem lyftir fótbolti.net bikarnum. 

Til hamingju Víðir!