• mán. 06. okt. 2003
  • Fræðsla

Markmannsþjálfun með Frans Hoek

KSÍ stendur fyrir komu markmannsþjálfarans Frans Hoek hingað til lands, en hann mun halda námskeið 24. - 26. október næstkomandi í Fífunni. Alls hafa um 70 manns skráð sig á námskeiðið og því stefnir í fjölmennasta þjálfaranámskeið KSÍ frá upphafi. Frans Hoek hefur undanfarin 6 ár verið markmannsþjálfari Barcelona og hefur einnig starfað sem markmannsþjálfari Ajax og hollenska landsliðsins. Þátttökugjald er kr. 5.000 en nú fer hver að verða síðastur að skrá sig. Dagskrá námskeiðsins má sjá hér fyrir neðan.

Dagskrá