• mið. 13. des. 2006
  • Fræðsla

KSÍ heldur I.stigs þjálfaranámskeið á Akureyri

Þjálfari að störfum
coaching5

KSÍ heldur I.stigs þjálfaranámskeið á Akureyri helgina 15-17.desember.  Útlit er fyrir góða þátttöku en námskeiðið fer fram í Hamri, Boganum og KA-heimilinu.  Það er ennþá hægt að skrá sig á námskeiðið með því að senda tölvupóst á siggi@ksi.is en taka þarf fram nafn, kennitölu, fullt heimilisfang, nafn félags, gsm síma og netfang. 

Námskeiðið er bæði bóklegt og verklegt og kostar 14.000 krónur.

Uppkast að dagskrá námskeiðsins má sjá hér, en hún getur breyst lítillega.  Nánari upplýsingar veitir Sigurður Ragnar Eyjólfsson fræðslustjóri KSÍ í síma 510-2900.

Dagskrá