• þri. 09. jan. 2007
  • Fræðsla

Þjálfaranámskeið á árinu 2007

Þjálfari að störfum
coaching7

KSÍ mun standa fyrir fjölmörgum þjálfaranámskeiðum á árinu 2007.  Dagsetningar eru komnar á hluta af námskeiðunum en fyrsta námskeiðið á nýju ári verður haldið strax núna í janúar.

KSÍ heldur eftirfarandi þjálfaranámskeið á árinu 2007:

  • KSÍ III 26.- 28. janúar
  • KSÍ VI skriflegt próf 2. febrúar kl. 14:00
  • KSÍ VII 2. febrúar kl. 19:00
  • UEFA B próf 11. febrúar kl. 10.00 - 12.00 (eina UEFA B prófið sem verður haldið í ár)
  • KSÍ V 13. - 15. apríl

Skráning er hafin á öll þessi námskeið nema KSÍ V.  Skráning fer frá á tölvupósti til Ragnheiðar Elíasdóttur (ragga@ksi.is)

Mikilvægt er að allar neðangreindar upplýsingar komi fram í skráningu:

Fullt nafn, kennitala, fullt heimilisfang, gsm sími, netfang og nafn félags.

Öll ofangreind námskeið fara fram í Reykjavík.

Í haust verða svo haldin KSÍ I, KSÍ II, KSÍ IV og KSÍ VI þjálfaranámskeið.

Nánari upplýsingar veitir Sigurður Ragnar Eyjólfsson fræðslustjóri KSÍ (siggi@ksi.is)