• þri. 07. apr. 2009
  • Fræðsla

Námskeið í þjálfun barna - Haldið í Kórnum

Þjálfari að störfum
lidsheild4

Laugardaginn 18. apríl munu Knattspyrnusamband Íslands og Alþjóðaknattspyrnusambandið (FIFA) standa saman að námskeiði sem haldið verður í Kórnum í Kópavogi. Námskeiðið er sérstaklega ætlað þjálfurum barna á aldrinum 6-12 ára en námskeiðið er þó öllum opið. Aðgangur er ókeypis.

FIFA sendir hingað til lands leiðbeinanda að nafni Martin Andermatt sem mun sjá um kennslu á þessu námskeiði. Á námskeiðinu verður fjallað um knattspyrnuæfingar fyrir börn á aldrinum 6-12 ára og samhæfingaræfingar.

Dagskrá námskeiðsins er sem hér segir:

Laugardagurinn 18. Apríl

kl. 8:45-10:00 – Bóklegt

kl. 10:30-12:00 – Verklegt

kl. 12:00-14:00 – Matarhlé

kl. 14:00-15:30 – Verklegt

kl. 15:45-17:00 – Bóklegt

Eins og fyrr segir fer námskeiðið allt fram í Kórnum í Kópavogi og er opið öllum.

Áhugasamir eru vinsamlegast beðnir um að skrá sig með því að senda tölvupóst á dagur@ksi.is með upplýsingar um nafn, kennitölu, símanúmer og tölvupóstfang eða með því að hringja í síma 510-2977.