• fös. 13. sep. 2013
  • Fræðsla

Umsóknir um þjálfarastyrki ÍSÍ

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands
ISI-logo

Stjórn Verkefnasjóðs ÍSÍ auglýsir hér með eftir umsóknum um þjálfarastyrki ÍSÍ.  Þjálfarastyrkir ÍSÍ eru veittir íþróttaþjálfurum sem sækja sér menntun erlendis í formi námskeiða eða ráðstefna og bæta þekkingu sína í þjálfun, sem mun nýtast íþróttahreyfingunni á Íslandi. 

Umsóknarfrestur er til 2. október og er upphæð hvers styrkjar 100.000 krónur.  Umsóknum skal skila á þar til gerðum eyðublöðum sem finna má hér að neðan.

Nánari upplýsingar veitir ÍSÍ.

Umsóknareyðublað