• sun. 22. sep. 2013
  • Fræðsla

Fjölmiðlafræðinemendur í heimsókn

Nemendur í fjölmiðlafræði við FÁ
fjolmidlafraedi-fa-ATT79526

Í liðinni viku heimsóttu nemendur úr FÁ höfuðstöðvar KSÍ og hlýddu á fyrirlestur um samskipti og þjónustu við fjölmiðla í tengslum við landsleiki, með áherslu á leiki á Laugardalsvelli.  Um var að ræða hóp 15 nemenda í fjölmiðlafræði og kom hópurinn í fylgd Róberts Örvars Ferdinandssonar, kennara síns. Að fyrirlestrinum loknum fór hópurinn í kynnisferð um allt mannvirkið, þar sem öll aðstaða fjölmiðla var skoðuð gaumgæfilega. 

Hluti hópsins sat fyrir á mynd í blaðamannafundarherberginu í kjallara Laugardalsvallar.  Smellið á myndina til að stækka hana.Nemendur í fjölmiðlafræði við FÁ