• mán. 07. okt. 2013
  • Fræðsla

KSÍ II þjálfaranámskeið í október

Þjálfari að störfum
coaching8

Knattspyrnusamband Íslands mun halda þrjú KSÍ II þjálfaranámskeið á höfuðborgarsvæðinu í október, eitt helgina 18.-20. október og tvö helgina 25.-27. október. Stefnt er að því að hafa að hámarki 35 þátttakendur á hverju námskeiði. Áhugasamir eru því hvattir til að skrá sig tímanlega.

Dagskrá námskeiðsins helgina 18.-20. október er hér að neðan. Dagskráin er birt með fyrirvara um breytingar. Námskeiðsgjald er kr. 17.500.

Námskeiðið er opið öllum þjálfurum sem lokið hafa KSÍ I þjálfaranámskeiði og skráning er hafin. Hægt er að skrá sig með því að senda tölvupóst á dagur@ksi.is og með því að hringja í síma 510-2977. Vinsamlegast látið eftirfarandi upplýsingar fylgja skráningu: Nafn, kennitala, félag, símanúmer og tölvupóstfang.

Dagskrá