• mán. 19. okt. 2015
  • Fræðsla

KSÍ II þjálfaranámskeið

Þjálfaranámskeið 2014

Knattspyrnusamband Íslands mun halda þrjú KSÍ II þjálfaranámskeið á höfuðborgarsvæðinu á næstu vikum, eitt helgina 30.október - 1. nóvember og tvö helgina 6.-8. nóvember. Stefnt er að því að hafa að hámarki 35 þátttakendur á hverju námskeiði. Áhugasamir eru því hvattir til að skrá sig tímanlega.

Dagskrá námskeiðsins helgina 30. október - 1. nóvember er hér í viðhengi. Dagskráin er birt með fyrirvara um breytingar. Námskeiðsgjald er kr. 17.500,-

Námskeiðið er opið öllum þjálfurum sem lokið hafa KSÍ I þjálfaranámskeiði og skráning er hafin. Hægt er að skrá sig með því að senda tölvupóst á dagur@ksi.is og með því að hringja í síma 510-2977. Vinsamlegast látið eftirfarandi upplýsingar fylgja skráningu: Nafn, kennitala, félag, símanúmer og tölvupóstfang.